Komudagur

Brottfarardagur

Bókaðu fyrirfram og fáðu besta verðið

Ef þú hyggur á að leigja bíl á ferðalaginu þínu, þá margborgar það sig fyrir þig að bóka bílaleigubílinn fyrirfram hér á Ferð.is.

Við höfum frábæra samninga við allar stærstu bílaleigur heims og það er mjög ólíklegt að draumabíllinn þinn sé ekki í boði. Sjáðu bara sjálf(ur)!

Loka

Gran Kanarí

Gran Kanarí

 

Eyjan sem nefnd er eftir hundi

Það er engin tilviljun að Gran Kanarí er vinsælasti sólaráfangastaður Íslendinga. Fyrir það fyrsta eru yfirgnæfandi líkur á að þú baðir þig sól og sælu, sama hvaða tími árs þú kemur í heimsókn. Þú getur baðað þig í hlýjum sjó allt árið um kring og valið úr frábærum veitingastöðum. Svo eru skemmtilegar verslanir á hverju strái - meira að segja verslanir sem selja alvöru tískuvörumerki! En óttist eigi, krúttlega og heimilislega götumarkaði er einnig að finna!

Svo má ekki gleyma að það er fugl nefndur eftir eyjunni; Kanarífuglinn. En ef þú hefur sérstakan áhuga á fuglum þá er Gran Kanarí tilvalinn staður til fuglaskoðunar, það er meira að segja stærðarinnar fuglagarður á svæðinu. Sem og skemmtigarður, rennibrautagarður, grasagarður og sundlaugagarður (reyndir mjög margir slíkir). Herragarðurinn er reyndar ekki á Gran Kanarí, honum nægir Kringlan og Smáralind.

En svo það sé súmmerað upp: Það er í raun hægt að gera allt sem hugurinn girnist á Gran Kanarí; það er sannarlega eitthvað fyrir alla, konur, börn og karla eins og mig.

 

Hafðu í huga...

... að Kanarí er bara 210 kílómetra frá Afríku, og meðalhitinn er eitthvað yfir 30 gráðurnar á sumrin. Þar eru líka virk eldfjöll. Sjóðandi heitur staður semsagt!

Skemmtileg staðreynd:

Nafnið „Kanarí“ þýðir í raun hundur. Án gríns. Það er meira að segja til Kanaríhundur.

 

Ef ég hitti þig á ströndinni mun ég ábyggilega veifa til þín!