Komudagur

Brottfarardagur

Bókaðu fyrirfram og fáðu besta verðið

Ef þú hyggur á að leigja bíl á ferðalaginu þínu, þá margborgar það sig fyrir þig að bóka bílaleigubílinn fyrirfram hér á Ferð.is.

Við höfum frábæra samninga við allar stærstu bílaleigur heims og það er mjög ólíklegt að draumabíllinn þinn sé ekki í boði. Sjáðu bara sjálf(ur)!

Loka

Tenerife

Tenerife

 

Næstflottasta eldfjallaeyja í heimi!

Þó að það sé styttra til Afríku en Evrópu þegar þú lendir á Tenerife ertu samt á Spáni. Þvílík heppni að það sé alltaf sól í Afríku líka eins og á Spáni! Og ef hitabeltisfuglar heilla þig (sem þeir hljóta að gera) þá er Teide þjóðgarðurinn staðurinn fyrir þig. Þú þarft reyndar ekkert að fíla hitabeltisfugla til að finnast gaman þar, garðurinn er flottasti staðurinn á eyjunni.

Annars geturðu bara slappað af í sólinni með sangríu, nú eða skellt þér í sjóinn. Það er geggjað að kafa í tærum sjónum á Tenerife, og svo hafa allir gaman af því að láta draga sig á risadekki með bát! Svo eru líka vatsnleikjagarðar sem eru meira en vel þess virði að heimsækja. Hvað er annars meira en vel þess virði? Rosalega vel þess virði kannski.

Tenerife er eldfjallaeyja. Ekki nándar eins merkileg eldfjallaeyja og Ísland, en samt fín. Tilvalið er að fara í gönguferðir um og á eyjunni og fyrir þá allra hörðust göngugarpana er skylda að fara upp að hlíðum Teide eldfjallsins. Passaðu þig samt, eldfjallið er virkt og gaus síðast árið 1909.

Ekkert víst að þú hafir tíma til að slappa af á Tenerife, en það er auðvitað þitt val. Ef þú nennir ekki að slappa af skortir þig í það minnsta ekkert að gera...

 

Hafðu í huga...

...að það eru þrjár H&M búðir á Tenerife. Hvað þýðir það? Jú, verslunarleiðangurinn getur ekki klikkað!

Skemmtileg staðreynd:

Blekfinka er fugl. Í alvöru. Hann er náttúrutákn Tenerife og hefur meira til brunns að bera en fyndið nafn. Hann er blár, vantar kannski smá lit í hann. En hann er samt flottur.

 

Ég verslaði hattinn, sólgleraugun og bolinn í H&M. Starfsfólkið þar er farið að þekkja mig!