Komudagur

Brottfarardagur

Bókaðu fyrirfram og fáðu besta verðið

Ef þú hyggur á að leigja bíl á ferðalaginu þínu, þá margborgar það sig fyrir þig að bóka bílaleigubílinn fyrirfram hér á Ferð.is.

Við höfum frábæra samninga við allar stærstu bílaleigur heims og það er mjög ólíklegt að draumabíllinn þinn sé ekki í boði. Sjáðu bara sjálf(ur)!

Loka

Bodrum

Bodrum

 

Paradís á jörðu!

Ahhh...Bodrum. Það fer sælutilfinning um líkamann bara við það eitt að segja þetta orð. Bodrum... Ahhh.

Bodrum er sannarlega draumur. Að spóka sig þar um í sólinni, kíkja á markaðina líflegu, láta götusala selja sér handónýt úr og sólgleraugu sem virka ekki á klink, og njóta lífsins almennilega. Þó að það sé hægt að versla sér ódýrt drasl á Bodrum (eins og víðast hvar annarsstaðar. „That‘s life“, eins og hægt væri að orða það á vondri engilsaxnesku), þá er verðlagið helsti munurinn á Bodrum og öðrum sumaráfangastöðum.

Verðlagið á Bodrum er hálfgert grín. Það er snilld að geta verslað og liðið alltaf eins og maður sé að spara. Það er eiginlega ekki hægt að versla ekki í Bodrum (svolítið flókin setning, endilega renndu aftur yfir hana ef hún var illskiljanleg við fyrsta lestur).

Hvað um það, þú þarft ekkert að versla á Bodrum. Það er nóg annað að gera, til dæmis að borða góðan mat. Á Bodrum eru margir flottir staðir, en svo er líka mjög næs að fá sér alvöru Kebab og bjór.

Eftir sjávarbusl er svo tilvalið að labba aðeins um höfnina sem er litrík og æðisleg og kíkja svo á listamennina sem eru á hverju strái. Rölt um Bodrum er dásemd, það er eitthvað svo þægilegt og kósí.

 

Turgutreis

Turgutreis, lítill bær u.þ.b. 20 km. frá Bodrum er annar og nýr staður sem hefur þetta allt:  - Fallegan miðbæ með heillandi og forvitnilegu götulífi, þrúngna af seiðandi andrúmslofti miðausturlanda. Hér er líka afar skemmtilegur markaður þar sem þú getur keypt allt með evrum eða pundum, djásn og dýrgripi við hliðina á örgustu falsmunum og eftirlíkingum, ótrúlega spennandi og dularfullt fyrirbæri sem laðar margan ferðamanninn langt að. Höfnin og hafnarsvæðið, hreinlegt og fallegt og strandlengjan með hvítum sandi og eyjunum úti fyrir. Hér er allt til alls, glæsihótel, minni hótel, stórmarkaðir, skemmtistaðir og heilmikil flóra af börum, veitingahúsum og matsölustöðum. Falleg og blómleg landssvæði umhverfis bæinn þar sem orkídeu- og grænmetisrækt setur svip sinn á. Turgutreis er mjög skemmtileg tyrknesk nýbreytni.

 

Gagnlegar upplýsingar


Hafðu í huga...

...að það er auðvelt og skemmtilegt að ferðast um Bodrum. Þú getur leigt þér bát og siglt um, leigt þér reiðhjól, vespu, mótorhjól eða einfaldlega venjulegan bíl!

Skemmtileg staðreynd:

Bodrum hét áður Halicarnassus (http://en.wikipedia.org/wiki/Mausoleum_of_Mausolus). Þar var grafhýsi, sem byggt var 353 til 350 fyrir Krist, sem er eitt af sjö undrum veraldar gamla heimsins.





Tékkaðu á „Fez" hattinum mínum. Þú verður að versla þér einn slíkan þegar þú ferð til Tyrklands.