Bókaðu fyrirfram og fáðu besta verðið
Ef þú hyggur á að leigja bíl á ferðalaginu þínu, þá margborgar það sig fyrir þig að bóka bílaleigubílinn fyrirfram hér á Ferð.is.
Við höfum frábæra samninga við allar stærstu bílaleigur heims og það er mjög ólíklegt að draumabíllinn þinn sé ekki í boði. Sjáðu bara sjálf(ur)!
Alicante

Íslenska nýlendan á Spáni!
Það þarf nú ekki að kynna Alicante neitt sérstaklega fyrir Íslendingum. Hundruðir Íslendinga eiga íbúð eða sumarhús á svæðinu, sem þeir nota fyrir sjálfa sig, fjölskyldu og vini.
Ert þú einn af þeim sem hefur aðgang að sumarhúsi á Alicante? Ef svo er, þá ertu á rétta staðnum. Ferð.is er með fáránlega lágt verð á sætum til Alicante. Ég skora á þig að tékka á dagsetningunni sem hentar þér hér í bókunarvélinni að ofan. Og mundu, um er að ræða beint flug með Icelandair.
Í Alicante er tilvalið að gera sér ferð í Castillo de Santa Bárbara en kastalinn gnæfir tignarlega yfir borgina.
Hafðu í huga...
... það er yfir 30 stiga meðalhiti í júlí á Alicante. Það er auðvelt að brenna á nefi og baki, svo ekki klikka á sólarvörninni!
Skemmtileg staðreynd:
Sólin skín í yfir 3.000 tíma á ári á Alicanta. Það ætti að duga þér, þú verður ekkert þar í heilt ár. Og svona skrifarðu Alicante með Morse kóða: „.-.-....-.-..--.-.“.

Ég leigði hús í Torrevieja síðasta sumar og tók vísitölufjölskylduna með. Þau voru hæstánægð með ferðina og ég skoraði mörg stig hjá frúnni.







