Bókaðu fyrirfram og fáðu besta verðið
Ef þú hyggur á að leigja bíl á ferðalaginu þínu, þá margborgar það sig fyrir þig að bóka bílaleigubílinn fyrirfram hér á Ferð.is.
Við höfum frábæra samninga við allar stærstu bílaleigur heims og það er mjög ólíklegt að draumabíllinn þinn sé ekki í boði. Sjáðu bara sjálf(ur)!
Riga í Lettlandi

Lítil stórborg með stórt hjarta
Riga (Ríka) er ekki bara fyrir ríka ríkisbubba heldur höfðar hún til allra sem hafa gaman af að heimsækja fallega stórborg og drekka í sig sögu og menningu. Borgin er fögur og gamli bærinn minnir helst á miðaldarborg.
Magnaðar byggingar, söfn, mannlíf, kaffi- og veitingahús gera hana einstaklega skemmtilega fyrir ferðamenn.
Fyrir þá sem vilja versla eru fimm verslunarmiðstöðvar miðsvæðis í Riga.
Hafðu í huga...
...að Hospitalis er veitingastaður sem nokkrir læknar opnuðu í Riga. Veitingasalurinn er innréttaður eins og spítali og gestir eru meðhöndlaðir sem sjúklingar. Ekki innrita þig þar inn vegna aðkallandi veikinda, nema þau séu þeim mun minniháttar og þú vilt almennilegan spítalamat.
Skemmtileg staðreynd:
Hæsti punktur Lettlands, Gaizinkalns, er einungis 312 metrar. Til samanburðar má nefna að Esjan er 914 metrar. Haraldi pólfara þykir það væntanlega ekki mikil áskorun.

Ég er í svakalegu formi og færi létt með að spretta upp Gaizinkalns.






