Skilmálar

VERÐ, VERÐBREYTINGAR OG SKILMÁLAR
Uppgefin verð miðast við gengi USD, EUR og eldsneytisverð á tilteknum degi og geta breyst til samræmis við breytingar sem kunna að verða á eftirtöldum þáttum:

a) Flutningskostnaði, þar með talið eldsneytisverði
b) Álögum, sköttum eða sérgreiðslum fyrir tiltekna þjónustu, t.d. lendingargjöld
c) Gengisbreytingum
d) Skilmálum og viðskiptareglum greiðslukorta

Alicante  6.mar 2012
Dublin    9.mar 2012
Kanarí  20.maí 2011
Lissabon 28. okt. 2011
Madrid      6.mar 2012
Portúgal    6.mar 2012
Riga 4.nóv. 2011
Skíðaferðir á Ítalíu   1.jul. 2011
Tenerife     20.maí. 2011
Tyrkland     6.mar 2012



FERÐ.IS áskilur sér rétt til að leiðrétta villur sem kunna að leynast í bæklingum eða á vef FERÐ.IS.

Athugið að einstaklingum undir 18 ára er ekki heimilt að versla þjónustu frá FERÐ.IS án þess að skriflegt samþykki forráðamanns liggi fyrir hjá ferðaskrifstofunni.

BÓKUNARGJALD
Þar sem eingöngu er hægt að bóka á netinu er ekki innheimt bókunargjald.

FORFALLATRYGGING
FERÐ.IS býður forfallatryggingu sem fólki er ráðlagt að kaupa. Gjaldið er 2500 kr. fyrir fullorðna og 1250 kr. fyrir börn. Forfallatrygging tryggir endurgreiðslu á þeim hluta fargjalds og gistikostnaðar sem greiddur hefur verið og ekki fæst annars endurgreiddur, ef farþegi getur ekki farið í fyrirhugaða ferð vegna: Dauðsfalls, skyndilegs alvarlegs sjúkdóms eða slyss sem krefst sjúkrahússvistar hans, maka hans, hvort sem um er að ræða maka samkvæmt hjónabandi eða staðfestri samvist, sambýlismaka, barns farþega eða barnabarns, foreldra hans eða tengdaforeldra, afa hans, ömmu eða systkina (framvísa þarf vottorði), verulegs eignatjóns á heimili hans eða í einkafyrirtæki sem gerir nærveru hans nauðsynlega (lögregluskýrsla liggi fyrir). Framangreind tilvik skulu vera þess eðlis að óhjákvæmilegt sé að afturkalla áður gerða pöntun. Sé ferð afturkölluð af ástæðum sem taldar eru upp hér að ofan er forfallatrygging, þjónustugjald (8000 kr.), og lántökukostnaður óafturkræft.

 

BREYTINGAR
0-7 dögum frá því að bókun er gerð ( þó minnst 4 vikum fyrir brottför) er hægt að breyta bókun án endurgjalds. Eftir það er hægt að breyta bókun gegn 6500 kr. breytingagjaldi.

Ef reglur samstarfsaðila okkar ganga lengra en að ofan greinir, gildir sú regla sem gengur lengra

 

AFPÖNTUN OG ENDURGREIÐSLA
Ferð afpöntuð innan við 3 dögum frá pöntun og minnst 4 vikum fyrir brottför:
-Full endurgreiðsla (að frádregnu 5000 kr. þjónustugjaldi).

Ferð afpöntuð meira en 4 dögum frá pöntun en þó 4 vikum fyrir brottför eða fyrr:
- Full endurgreiðsla að 15.000 kr á mann undanskildu.

Ferð afpöntuð 15-28 dögum fyrir brottför:
- 50% af verði ferðar óendurkræft, þó aldrei lægri upphæð en 15.000 kr á mann.

Ferð afpöntuð 8-14 dögum fyrir brottför:
- 75% af verði ferðar óendurkræft, þó aldrei lægri upphæð en 15.000 kr á mann.

Ferð afpöntuð minna en 7 dögum fyrir brottför:
- Engin endurgreiðsla.

Ef reglur samstarfsaðila okkar ganga lengra en að ofan greinir, gildir sú regla sem gengur lengra.

Sér afpöntunarskilmálar eru fyrir hópa

Endurgreitt er inná kreditkort ef greitt er með þeim.

AFLÝSING OG BREYTINGAR Á FERÐAÁÆTLUN
Vegna atburða og aðstæðna sem telja má ófyrirsjáanlega og þess eðlis að ferðaskrifstofan getur á engan hátt haft áhrif á atburðarás, né afleiðingar tengdum þeim, ber ferðaskrifstofan enga ábyrgð. Í slíkum tilvikum er ferðaskrifstofunni heimilt að breyta eða aflýsa ferðinni með öllu, enda verði farþegum tilkynnt þar um tafarlaust.

Geri ferðaskrifstofan breytingar á ferð áður en hún hefst skal tilkynna það farþega svo fljótt sem unnt er. Sé um verulega breytingu að ræða ber farþega að tilkynna ferðaskrifstofunni eins fljótt og unnt er hvort hann óski eftir að rifta samningnum eða gera viðbótasamning.

Ferðaskrifstofunni er heimilt að aflýsa ferð, ef í ljós kemur að þátttaka er ekki næg. Í leiguflugi miðast lágmarksþátttaka við að a.m.k. 65% nýting sé í viðkomandi flugvél, bæði á út- og heimflugi. Sé nýting tiltekinnar flugleiðar á ákveðnu tímabili (flugsería) að jafnaði undir 70% er ferðaskrifstofu heimilt að fella niður öll flug á tilteknu tímabili á þeirri flugleið (flugseríu), jafnvel þó lágmarksþátttaka hafi náðst í einstaka flugi. Í sérferðum gildir að lágmarksþátttaka er 20 manns nema annað sé sérstaklega tilgreint í auglýsingum eða sölubæklingum.

FULLNAÐARGREIÐSLA OG GREIÐSLUKJÖR
Greiða þarf ferð að fullu um leið og ferð er bókuð en boðið er upp á greiðsludreifingu í samstarfi við VISA og MASTERCARD.

TRYGGINGAR
Við hvetjum viðskiptavini til að huga vel að tryggingamálum sínum áður en lagt er upp í langferð. Sé ferð greidd með greiðslukorti a.m.k. að hálfu fylgir oftast með ókeypis ferðatrygging frá greiðslukortafyrirtækjunum. Athugið að þessar tryggingar eru mjög mismunandi eftir tegund greiðslukorts. Kynnið ykkur vel skilmála hjá greiðslukortafyrirtækjunum.

Hægt er að sækja um sjúkratryggingakort hjá Tryggingastofnun ríkisins. Hægt er að fylla út umsóknareyðublaðhér.

FLUGIÐ
Upplýsingar um brottfarar- og komutíma flugvéla fást í síma 50 50 500 allan sólarhringinn og í textavarpi bls. 420-421. Brottfarartímar og flugtímar eru áætlaðir og háðir breytingum vegna veðurs og af tæknilegum orsökum.

Brottför frá Íslandi: Mæting í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli er í síðasta lagi 2 klst. fyrir áætlaðan brottfarartíma, hvort sem um er að ræða almenna innritun eða flýtiinnritun. Í tengslum við allar flugferðir bjóðast rútuferðir með Kynnisferðum frá BSÍ í Reykjavík. Nánari upplýsingar er að finna hér.

FARANGUR
Flug með Icelandair: Hámarksfarangur fullorðinna og barna eldri en 2ja ára til og frá Íslandi er 20 kg á farþega. Börn yngri en 2ja ára fá 10 kg á Evrópu. Farþegum er heimilt að hafa með sér eftirfarandi handfarangur:

- Tösku, hámarksstærð 55x35x25 sm. Hámarksþyngd 6 kg.

Flug yfir Atlantshafið/takmörk á fjölda hluta: (frá Evrópu til Bandaríkjanna og til baka) tvær innritaðar töskur sem hvor um sig vegur að hámarki 23 kg (50 pund), og samanlögð lengd, breidd og hæð má ekki vera meira en 158 cm (62 to).

Við mælum með því að farþegar beri fjármuni, skartgripi, mikilvæg skjöl, lyf og ferðatölvur í handfarangri. Um sérstakan farangur eins og hjól, golfsett og skíði gilda ákveðnar reglur sem áríðandi er að kynna sér vel.

Flug með Iceland Express: Hver farþegi má innrita farangur allt að 20 kg. Óheimilt er að færa farangursheimildir á milli bókana. Farþegum er heimilt að hafa með sér eftirfarandi handfarangur:

- Tösku, hámarksstærð 55x35x25 sm. Að auki máttu taka með þér handtösku, frakka eða kápu, fartölvu, myndavél og poka með vörum úr fríhöfn. Heildarþyngd handfarangurs, að öllu þessu meðtöldu, má ekki vera umfram 10 kg.

Börn undir 2ja ára aldri sem ekki hafa flugsæti hafa ekki ofangreindar farangursheimildir. Greiða þarf fyrir farangur sem er umfram ofangreind mörk og er gjaldið 1.000 ISK (8 GBP, 85 DKK, 11 EUR, 95 SEK) fyrir hvert kíló aðra leið. Fyrir sérstakan farangur svo sem golfsett reiðhjól brimbretti svifdreka skíðabúnað o.þ.h. greiðist sérstakt gjald 2.500 ISK (20 GBP, 200 DKK, 25 EUR, 250 SEK) Athugið að gjaldið er innheimt í gjaldmiðli brottfararstaðar hverju sinni.
Áskilinn er réttur til að hafna flutningi á farangri sem fer út fyrir skilyrði þau sem áður eru nefnd.

Á ÁFANGASTAÐ
Aðbúnaður/þjónusta: FERÐ.IS ber ekki ábyrgð ef aðbúnaður og þjónusta gististaðanna er tímabundið ekki fyrir hendi, t.d. sökum bilana, lokunar á veitingastöðum eða viðgerða, t.d. ef sundlaug er lokuð vegna hreinsunar eða vegna endurnýjunar. Þótt misjafnlega sé staðið að þrifum á gististöðum ná þau oft á tíðum ekki að standa undir kröfum Íslendinga. Komi upp óánægja með þrif á vistarverum skal tafarlaust hafa samband við stjórnendur viðkomandi gististaðar eða fararstjóra á staðnum ef þeir eru til staðar. Í stúdíóum og íbúðum miðast eldhúsbúnaður við hámarks fjölda gesta. Gestir bera ábyrgð á eldhúsbúnaði ásamt öðrum húsbúnaði meðan þeir dvelja í íbúðum. Afföll og skemmdir skal gera upp við gististaðinn fyrir brottför.

Herbergi/íbúðir: Í sérsamningum FERÐ.IS er miðað við ákveðna gerð herbergja/íbúða á hóteli en ekki allar gerðir herbergja sem í boði eru á hótelinu. Ef viðskiptavinur er óánægður með herbergi/íbúð við komu á hótel getur hann stundum fengið betra herbergi gegn aukagjaldi sem hann greiðir beint til hótelsins á staðnum.

Tveggja manna herbergi er ýmist með tveimur einstaklingsrúmum eða hjónarúmi (breidd 135 cm - 180 cm, allt eftir hótelum). Sum hótel bjóða eingöngu aðra hvora gerð tvíbýlisherbergja. Ef viðskiptavinur óskar sérstaklega eftir annarri hvorri gerð þarf að taka það fram við bókun og mun reynt að uppfylla þá ósk.

Þriggja manna herbergi er í öllum tilfellum tveggja manna herbergi (ýmist með hjónarúmi eða tveimur rúmum) og aukarúmi fyrir þriðja mann. Aukarúmið getur verið einstaklingsrúm, svefnsófi eða færanlegt rúm ("roll away"). Þegar þriðja rúmið er komið inn, má gera ráð fyrir að fremur þröngt sé orðið í herberginu.

Á gististöðum í Bandaríkjunum eru þriggja manna herbergi með tveimur hjónarúmum (á sumum hótelum er hægt að fá aukarúm gegn gjaldi sem greiðist á staðnum). Þriggja manna herbergi eru einkum ætluð fyrir fjölskyldur með börn.

 

Fjögurra manna herbergi eru með einu hjónarúmi og tveimur aukarúmum (sbr. lýsingu á aukarúmi í þriggja manna herbergi hér að framan) eða tveimur kojum. Á gististöðum í Bandaríkjunum eru fjögurra manna herbergi með 2 hjónarúmum.

Innritun á gististað: Hin almenna starfsregla gististaða er að herbergi/ íbúð er laus fyrir gesti á bilinu 12:00 - 17:00. Séu herbergi/íbúðir ekki tilbúin, þegar gestir koma á gististað, er hægt í flestum tilfellum að fá farangur geymdan hjá burðarmönnum ("porters desk") hótelsins. (Verður stundum að greiða þóknun fyrir). Ef viðskiptavinur ætlar að innrita sig á hótel eftir kl. 18:00, verður hann að láta Ferð.is við bókun eða hringja á hótelið, því að skv. almennum starfsreglum gististaða ber þeim ekki að halda herbergi/íbúð eftir kl. 18:00.

 

YFIRBÓKUN GISTISTAÐA/ÍBÚÐA
Samkvæmt starfsreglum gististaða hafa hótel og íbúðahótel leyfi til að yfirbóka gistirými til að mæta eðlilegum afföllum í pöntunum. Stundum kemur upp sú staða að gististaðir hafa ekki pláss fyrir alla þá viðskiptavini sem eiga staðfestar pantanir. Gististaðirnir eru þá skyldugir til að útvega viðskiptavinum, sem ekki fá inni, sambærilegt eða betra hótel. FERÐ.IS ber ekki ábyrgð á yfirbókunum gististaða, en aðstoðar farþega eftir föngum.

Skil á herbergjum: Almenna starfsreglan er sú að rýma þarf herbergi/íbúð milli kl.10:00 -12:00 á brottfarardegi. Ef óskað er eftir að halda herbergi/íbúð lengur er það stundum hægt gegn gjaldi sem greiðist á staðnum. Ef viðskiptavinur fer með kvöldflugi er hægt að fá farangur geymdan hjá burðarmönnum hótelsins ("porters desk") og verður stundum að greiða þóknun fyrir.

BÍLALEIGUR
FERÐ.IS eru umboðsaðili fyrir bílaleigur, en ber ekki ábyrgð vanefndum eða mistökum slíkra fyrirtækja sem ekki hafa orðið vegna mistaka hjá FERÐ.IS. Leigutaki ber ábyrgð á því að kynna sér um lágmarksaldur ökumanns og hvaða takmarkanir eru á akstri milli landa. Athugið að leigutaki verður að hafa meðferðis kreditkort, skráð á sitt nafn og gilt ökuskírteini. Ekki er hægt að staðfesta ákveðna bílategund heldur er staðfestur flokkur.

Tegundir bíla sem eru til innan hvers flokks geta breyst með litlum fyrirvara. FERÐ.IS ber ekki ábyrgð ef bíll í staðfestum bílaflokki er ekki til, það er á ábyrgð bílaleigu að leysa slíkt með því að láta leigutaka í té bíl í öðrum flokki án þess að hann beri aukakostnað. Áríðandi er að kynna sér vel hvað er innifalið í fyrirframgreiddu gjaldi fyrir bíl og hvernig tryggingamálum er háttað. Í sumum tilfellum eru í boði viðbótartryggingar sem leigutaki semur um kaup á beint við bílaleiguna og greiðir á staðnum. Áríðandi er að leigutaki viti að víða er ekki hægt að kaupa af sér alla sjálfsábyrgð, hann ber ábyrgð upp að vissri upphæð ef óhapp verður. Nauðsynlegt er því að leigutaki skoði bílinn vel þegar hann tekur við honum og láti skrá t.d. ef einhverjar rispur sjást.

Við mælum eindregið með að starfsmaður bílaleigunnar sé fenginn til að skoða bílinn þegar honum er skilað. Góð regla er að skila bíl fullum af bensíni (geymið kvittun fyrir bensíninu) þar sem það er oft töluvert dýrara að kaupa það hjá bílaleigunum ef ekki hefur verið valið að kaupa fullan tank fyrirfram. Leigudagur miðast við 24 tíma, ef farið er 59 mín fram yfir umsaminn leigutíma greiðist aukadagur á fullu verði. Þarna hefst nýtt leigutímabil sem leigutaki semur um beint við bílaleiguna á viðkomandi leigustað. Aðgætið vel hvað þið skrifið undir á leigusamningnum.

ÖNNUR ÞJÓNUSTA
FERÐ.IS er í samvinnu við ýmsa aðila í ferðaþjónustu sem leigja t.d. sumarhús eða selja alferðir sem hefjast í öðrum löndum. Þessir aðilar hafa mismunandi skilmála, t.d. varðandi bókunarfyrirvara, innborganir, tryggingu, afpöntun og fleira. Þar sem þeirra skilmálar ganga lengra en skilmálar FERÐ.IS gilda þeir skilmálar sem ganga lengra.

ALMENNAR UPPLÝSINGAR Á VEFSÍÐU OG Í BÆKLINGUM FERÐ.IS
Upplýsingar um merkisstaði, söfn, veitingastaði, skemmtistaði, skemmtigarða, verslanir, afgreiðslutíma verslana, einstaka viðburði, dagsetningar þeirra, verðlag og ýmis önnur atriði eru fengnar frá þriðja aðila, byggðar á nýjustu heimildum frá m.a. ferðamálaráðum og ýmsum þjónustuaðilum viðkomandi landa og birtast með þeim fyrirvara af hálfu FERÐ.IS að eitthvað kann að hafa breyst frá því að þessar heimildir voru gefnar út.

Allt efni og allar upplýsingar á heimasíðu FERÐ.IS eru settar fram eftir bestu vitund. FERÐ.IS setur fyrirvara við rangfærslur, villur og/eða mistök sem eru mögulegar settar fram á vefsíðunni FERÐ.IS.is og tekur ekki ábyrgð á slíkum villum.

FERÐ.IS ábyrgist ekki upplýsingar sem fram koma á netföngum sem gefin eru upp í bæklingum eða vefsíðu.

Ferðaskrifstofan FERÐ.IS áskilur sér rétt til að breyta öllum upplýsingum sem fram koma á heimasíðunni, sem og þessum skilmálum, án nokkurs fyrirvara.

VANDAMÁL
Ef af einhverjum ástæðum koma upp vandamál í ferðinni skal tafarlaust hafa samband við fararstjóra þar sem þeir eru. Þeir munu reyna að greiða úr hvers manns vanda og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að leysa málið á staðnum. Takist það ekki svo viðunandi sé að mati farþega skal hann snúa sér til FERÐ.IS, strax eftir komuna til landsins eða í síðasta lagi innan mánaðar frá því að viðkomandi ferð lauk, að öðrum kosti verða hugsanlegar bótakröfur ekki teknar til greina. Vinsamlegast athugið að athugasemdir viðskiptavina verður að leggja fram skriflega svo að þær fái eðlilega afgreiðslu.

 

Að öðru leyti en hér greinir gilda Lög um alferðir ( 1994 nr. 80).